14. júlí 2008 klukkan 13:35
Halló allir.....eða þeir fáu sem að koma hérna inn ennþá

Hef ekki alveg staðið mig nógu vel í þessu blogg veseni......en hef nú samt sett soldið af myndum inn á myndasíðuna mína
http://www.dotphoto.com/Go.asp?l=lindadagmar&P=7F06&AID=5374694&T=1Var að setja inn myndir frá Bon Jovie ferðinni til London í júní

Endilega kíkið á þær.
Annars er bara allt gott hjá okkur. Litla pæjan okkar orðin 2ja ára og stækkar og stækkar!...flýtir sér kannski fullmikið í ákveðninni.....heheh....á svo sem ekki langt að sækja það
Sé til hvað ég nenni að halda þessu bloggi áfram.......vil nú samt ekki alveg loka á þetta!...
over and out
LDH
Linda Dagmar
21. janúar 2008 klukkan 23:01
Gleðilegt ár og takk fyrir gamla!
Maður er nú ekki búin að vera neitt sérstaklega duglegur í blogginu undanfarið!.....
Við skelltum okkur á Árshátíð Saumó-Tönsberg um helgina....en það eru Verzló gellur og makar;) Það var haldið í Leiðhömrum hjá Iingu Lillý......Bond þemað var í algleymingi þetta kvöldið, eins og sjá má á myndunum......
Maturinn var frá Red Food og var hann alveg geggjaður! mæli sko með þessari veisluþjónustu;)
Takk fyrir skemmtilegt kvöld!
Myndir komnar inn hér til hliðar.......
adios amigos
Linda Dagmar
13. október 2007 klukkan 22:28
Fórum í svaka flott partý í gær. Siggi frændi varð 40 ára og hann og Mæja konan hans voru að halda upp á sameiginlegt afmæli. Var haldið í Rafveituheimilinu í Elliðaárdalnum. Það var svo heitt þarna inni að ég held að Bingi hafi verið að hita þetta eitthvað extra upp

þegar maður var að reyna að dansa að þá laaaak af manni svitinn eftir einn dans!......annars var svaka stuð þarna og mikið hlegið og dansað. Við tróðum upp, ég, mamma og Svandís og tókum lag fyrir afmælisbarnið!.......slógum náttulega í gegn! hehe....
endilega kíkið á myndirnar úr partýinu hér til hægri.......Siggi 40 ára:)
over and out
Linda Dagmar
18. september 2007 klukkan 22:19

Hmmmm eitthvað lík þessum stjörnum?....... prufið þetta;)
Linda Dagmar
26. ágúst 2007 klukkan 22:38
Þá er þetta sumar að verða búið.....og það er sko ekki leiðilegt að vera búin að vera í fríi þetta sumar í svona frábæru veðri dag eftir dag.....ótrúlegt þar sem að þetta byrjaði nú ekki gæfulega í byrjun júní!
En við erum búin að gera ýmislegt í sumar og með dyggri aðstoð okkar yndislegu Sólveigar (barnapíunnar okkar) þá höfum við Stebbi aðeins kíkt í golf í sumarfríinu okkar og maður er bara að standa sig ágætlega og ég held að Stebbi sé að verða húkkt á þessu líka aftur

þannig að það verður tekið á því líka frameftir hausti á meðan veður leyfir"! og svo reynir maður kannski að koma sér í klúbb næsta sumar og lækka forgjöfina allverulega! sjáum til;)
Við fórum í sumarbústað í Þjórsárdalinn í byrjun ágúst um verslunarmannahelgina og það var bara yndislegt þar.....
Við fórum út að borða með skemmtilegu fólki á Menningarnótt í Reykjavík og það var svaka stuð.......
Ég skellti mér á dansnámskeið hjá Dan Karaty í World Class,Laugum um helgina og er þessi gaur BARA snilldar dansari og frábær kennari......en hann er einmitt danshöfundur og gestadómari í So you think you can dance...

......En það eru SNILLDAR þættir sem enginn ætti að missa af! IDOL hvað segi ég nú bara........hvað eru margir sem kunna að gaula eitthvað..... !.....miklu skemmtilegra að sjá fólk skipta svona um stíl og dansa sitthvort í hverri viku!.....100 sinnum erfiðara...
Núna er maður bara að fara að byrja að vinna aftur í kringum mánaðarmótin.......og er það bara spennandi að byrja aftur og koma sér í djobb gírinn aftur!......maður er búin að vera nógu lengi núna í mömmu og húsmóðurs gírnum!.....hehe....það er nú samt búið að vera eitt það erfiðasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur......;) og líka skemmtilegt náttulega......;) Gígja Kristný er að fara til dagmömmu á þriðjudag í aðlögun og byrjar svo á fullu líka þegar ég fer að vinna.....en ég held að hún eigi nú eftir að sakna Sólveigar soldið þar sem þær eru búnar að vera svo góðar vinkonur í allt sumar......en hún fer bara í heimsókn til hennar og lætur hana dekra við sig;)
laiter....
kv
Linda.....who thinks she can dance....dance...danceeee?
Linda Dagmar
24. júlí 2007 klukkan 22:22
Hellu.....
var að skella inn myndum úr brúðkaupinu hjá Mariko og Árna um helgina

þetta var æðislegur dagur og tókst frábærlega í alla staði!.....það var æðislegt að vera á Þingvöllum í þessu fallega veðri!......
Það var að sjálfsögðu svaka stuð í veislunni og Raggi Bjarna var leynigestur og fór á kostum.....allir veltust um af hlátri!....hehe snilli.....
Brúðurin var æðislega falleg og brúðguminn að sjálfsögðu flottur líka:).......
sjá myndir hér til hliðar;)
Enjoy:)
Linda Dagmar
09. júlí 2007 klukkan 20:21
Hellu allir

Sumarið er komið! það er sko óhætt að segja það.......það er ótrúlegt hvað það snýst allt um veðrið alltaf hreint!....en það er kannski ekki furða á svona skeri;)
Nóg búið að vera að snúast hjá manni.....enginn tími í að blogga......en ég set inn nokkrar línur svona til að update-a
-Við erum búin að klára að laga fyrir utan húsið hjá okkur:)
-Gígja Kristný orðin 1 árs og búið að halda 2 afmæli!.....
-Gígja búin að vera í pössun nokkrum sinnum í viku í mánuð núna....hjá stelpu sem heitir Sólveig Rún.....og gengur frábærlega!
-Ég er búin í fæðingarorlofi og byrjuð í sumarfríi!.....byrja að vinna aftur í haust:)
-Kíkti í Tönsberg/Cyberg útileguna.....gaman gaman.....
-Írskir dagar á Akranesi um helgina.....tókst vel....sjá myndir á síðunni hjá Gígju
-Mariko gæsuð og partý hjá mér og farið á Lopapeysuna......sjá myndir hér til hliðar.....
síðan er ættarmót framundan um næstu helgi og brúðkaup þarnæstu helgi

......svo ætlum við að skreppa í bústað í sumarfrí í viku í byrjun ágúst......nóg að gera bara:).....
jæja þá er sumar update-ið komið
hafið það gott það sem eftir er sumars!
knús
Linda dinda
Linda Dagmar
22. maí 2007 klukkan 16:33
Jæja ný ríkisstjórn virðist vera að myndast og Sjálfstæðisflokkurinn að fara í stjórn með Samfylkingunni! ekki hélt ég að það myndi gerast.......en skrítnari hlutir gætu gerst......! vonandi gengur þetta bara upp og verður til þess að landið okkar verður enn betra......allavega hlýtur Samfylkingin að berjast fyrir sínu kosningaloforði hérna í Norðvestur kjördæmi....en það var að það yrði frítt í Hvalfjarðargöngin.....ég býð spennt eftir því!
Gígja píja er loksins að verða frísk eftir veikindi allan maí.....vonandi að þetta sé búið í bili hjá henni....ekkert of skemmtilegt að hanga bara heima og komast ekkert út.....það er svo sem ekkert frábært veður ennþá....en ég er búin að ákveða það að það verður gott veður í sumar!....þar sem ég ætla ekkert út fyrir landsteinana í sumar......enn er samt búin að ákveða það að fara á Man Utd leik í haust.......

Ætla að skella mér í einkaþjálfun til Heiza núna í mánuð.....koma sér aðeins í betra form fyrir sumarið....þar sem maður datt soldið niður eftir handarbrákunina

aldrei að vita nema maður skelli sér á fótboltaæfingu í sumar þegar veðrið verður betra!....rifja upp gamla takta.....og ég looooofa að ég fer ekki í markið......
Var að fá boðskort í brúðkaup í sumar......vúhú hlakka til....það verður geggjað;) can´t wait
Fór á vorfagnað Kaupþing upp í Heiðmörk á fimmtudag......það var bara ágætt....fínt veður og var það haldið í stóru samkomutjaldi þar.....flæðandi öl og fleira eins og Kaupþing er einu lagið....
Stebbsarinn búinn að vera svaka duglegur um helgina og dúndraði upp girðingu í kringum pallinn okkar.....sjá myndir af honum inn á síðunni hjá Gígju........duglegur strákurinn;)
Heiður er komin til Spánar í málaskóla og er frekar skrautlegt klaustur sem þær búa í .......getið lesið um ævintýri hennar á
www.heidurh.bloggar.is hún verður í mánuð þar......sakna hennar frekar mikið strax;)
svo er bara mánuður í stór afmæli hjá Gígju Kristný.......hún efnir örugglega til stór veislu;)
svo bara áfram ÍA......vonandi vinna þeir leik fljótlega:)
over and out
LDH
Linda Dagmar
11. maí 2007 klukkan 10:37
Þetta Júróvision er nú alveg orðið algjört rugl!.....hvert lagið öðru lélegra.....austantjalds popp dauðans.....ég held bara að við ættum að fara að hætta að taka þátt í þessari keppni. Bara rugl að eyða peningum í þetta!.....þessi keppni er ekki eitthvað sem við ættum að miða okkur við....þetta lið hefur ekki hundsvit á tónlist....ekkert nema kripplingar í ljótum fötum og syngja illa!.... Nú var ég júróvison fan hér í Denn tid og kunni yfirleitt flest öll lög og dansaði og söng með ;) en núna geyspar maður bara yfir þessu og tuðar út í eitt

annað hvort hefur smekkur minn breyst eða keppni er orðin hörmung!....
Talandi um mafíu og það er ekki eðlilegt að 10 lög sem komast áfram séu öll frá Austur-Evrópu!.....held að Vestur-Evrópa ætti nú bara að búa til nýja keppni og leyfa Balkan liðinu að eiga þessa keppni.......
En Eiki var flottur og mér fannst hann skila sínu atriði mjög vel.....var stolt af honum!
Jæja nóg af þessu!
Til hamingju Heizi minn með afmælið í dag

stóóóóórt knúúúúúu´s!!!!
og muna svo X-D á morgun!!!!!!
Linda Dagmar
06. maí 2007 klukkan 16:38
Hellu.....
Erfið vika að baki

búin að vera meira og minna lokuð inni síðan á mánudag þar sem Gígja píja náði sér í hita og var veik í 6 daga...púff.... og ekki batnaði það þar sem UTD datt úr meistaradeildinni og klikkaði á að komast í úrslitaleikinn!.....
Ennnn...UTD varð enskur meistari um helgina og var það langþráður titill síðan 2003!!! áfram UTD! tökum svo næst bikarmeistaratitilinn af Chelski

Fór í 1 árs afmæli til Vigfúsar Fróða í gær og var það svaka veisla....Gígja gat reyndar ekki komið með þar sem hún er ennþá að ná sér eftir veikindin....Það voru svaka trakteringar hjá Mariko.....efnileg í veisluhöldunum!
Skemmtilegri vika framundan.....Eurovision á fimmtudag.....hmmm ætli Rauði komist áfram?.....sjáum til.....annars orðið svo leiðilegt hvað þessar austur-Evrópuþjóðir eru farnar að eiga þessa keppni!......svo náttulega kosningar á laugardag og Eurovision úrslit.....
Segji bara áfram X-D !!!!! enga afturför takk!!!!!
Linda Dagmar